allavega þá er ég búinn í skólanum þessa önnina og lokaeinkunnirnar mínar voru ein sjöa og þrjár áttur.. nenni ekki að fara eitthvað nánar út í það en fyrir utan þessa sjöu þá er ég alveg frekar sáttur með allt saman

ég er að "vinna" í að setja lokaverkefnis myndina mína inná netið. hún heitir "exit" og miðað við ummæli kennarans þá var hún mjög metnaðarfull en það var eitthvað pínu mál með að mixa saman kvikmynda-upptöku-stílum... en já hún mun fara inná netið þegar að ég nenni að senda hana þangað

allavega... ég efast um að ég sé eitthvað að fara að blogga fyrir jól þannig að ég óska öllum gleðilegra jóla hvar sem þið eruð og gleðilegs árs ef ég heyri ekki í ykkur fyrr en á næsta ári
gæti ekki verið betra!
Ég þarf meira að segja að gera það í dag, þar sem ég er í fríi, reykna líka með að ég taki herbergið mitt með í leiðinni.
Fór reyndar allmikill tími í að gera myndina sem er um 3 og hálf mínúta að lengd en ég vona að það hafi skilað sér.. Bekkurinn og kennarinn virtust allavega sáttir.
Það var samt geðveikt fyndið. Alltaf gaman að gera grín að asnalegu fólki.